Guðlaugur Albertsson

Vafraðu um


Tenglar

Um mig

Nafn:

Guðlaugur J. Albertsson

Farsími:

864 4788

Heimilisfang:

Þóshamar

Staðsetning:

Tálknafirði

Heimasími:

438 6470

Um:

Græjur sem ég nota: Myndarvélar: CANON 5D Canon EOS 20D Linsur: Canon 17-40 mm 1:4 Canon 28-70 mm 1:2,8, Canon EFS 18-55 mm 1:3,5-5,6, Sigma 70-300 1:4-5,6. Vatnsmerki er fengið úr HP ljósmyndaforriti

Færslur: 2008 Febrúar

18.02.2008 23:56

Olíuhreinsistöð á Vestfjörðum

Olíuhreinsistöð á Vestfjörðum

Kynningarfundur var haldinn í félagsheimilinu á Patrekfirði 18.febrúar um hugsanlega olíuhreinsistöð á Vestfjörðum.
Atvinnumálanefndir Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar stóður fyrir fundinum.
Mæting fór fram úr björtustu væntingum forráðamanna fundarins,
en 150 manns  mættu á fundinn
.

Framkvæmdarstjóri Íslensks Hátækniiðnaðar
ehf., Hilmar Foss, var með framsögu um
olíuhreinsistöðvar og svaraði fyrirspurnum.
Um 300 milljarða kostar að reisa slíka stöð
og er gert ráð fyrir því að ársveltan sé svipuð. 
Ekki kom fram í máli Hilmars hvenær svari
væri að vænta um hvort að stöðin yrði reist
í Hvestu en fram kom í máli hans að
Arnarfjörðurinn mynda henta einkar vel
sökum dýptar og að hafaldan berst ekki inn
í fjörðinn.
Mikill hagur yrði af byggingu og  rekstri slíkrarstöðvar fyrir Vestfirðinga enda ekki lítil lyftistöng fyrir samfélagin.
Talið er að um 500 manns fái atvinnu af þessari stöð og þar af 15-20% starfsmanna með
háskólamenntun. Fram kom á máli Hilmars að mjög algengt sé að annarsskonar iðnaður rísi í kringum olíuhreinsistöðvar enda margar afurðir unnar úr
olíu og olíutengdum afurðum. Áður hefur komið
fram að
iðnaður sem þessi hafi svokölluð fimmföldunar áhrif en það felur í sér að á móti hverju einu starfi í olíuhreinsistöðinni skapist fjögur störf í hliðargreinum og þjónustugreinum
Með fundinum gafst íbúum og öðrum áhugamönnum gullið tækifæri til að kynna sér þetta málefni til hlítar ásamt því að koma skoðunum sínum á framfæri.


14.02.2008 23:08

Pabbi........

Pabbi tókstu þessa mynd ? 

 það var ómögulegt að sleppa þessari myndartöku.
Ekki bara sjómenn sem lesa FISKIFRÉTTIR.

09.02.2008 23:44

Skylmingar

Skylmingar

Guðjón Ingi Gestsson, forseti Skylmingasambands Íslands, heimsótti Skylmingafélag Tálknfirðinga, Gladii Rustici, um helgina og afhenti útbúnað til skylminga, þ.e. sverð, grímur, hanska og stakka. 
Jafnframt var haldið námskeið í íþróttahúsinu og kennd vour helstu undirstöðuatriði skylminga.Námskeiðið, sem var ókeypis, var öllum opið og nýttu sér það alls 36 manns á ýmsum aldri.

Í kjölfar námskeiðsins munu tveir til þrír heimamenn fara til Reykjavíkur á námskeið í þjálfun skylmingamanna og halda uppi reglulegum æfingum. 

 
Á myndinni má sjá forseta Skylmingasambands Íslands, Guðjón Inga Gestsson og
formaður Ungmennafélags Tálknafjarðar, Bjarnveig Guðbrandsdóttur.

07.02.2008 23:25

Öskudagurinn

Öskudagur


































Öskudagurinn var haldinn með pomp og prakt á Tálknafirði,
 eins og
víðast hvar á landinu.
Allir
skemmtu sér vel saman, hvort sem það voru Ninjur,
 kúreka-
stelpur, Hómer Simpson eða
nunnur.
Kötturinn var sleginn úr tunnunni,
með tilþrifum eins og sést á myndinni. 


06.02.2008 23:50

Indriði Kristins BA 751

       Fyrsta nýsmíðinn á .....























Tálknafjörður: Í dag 6.feb. "08 kom nýr bátur til heimahafnar á Tálnafirði Útgerðarfélagið Miðvík ehf., stendur að kaupunum, 
en að útgerðinni stendur Guðjón Indriðason og fjölskylda. 
Nýi báturinn, sem er Cleopatra 38, hefur hlotið nafnið Indriði Kristins BA-751, og er hann
15 brúttótonn.
Skipstjóri á bátnum verður Þór Magnússon.
Þetta er fyrsta nýsmíðin í smábátakerfinu sem afgreidd er til Vestfjarða með línubeitningarvél.
Aðalvél bátsins er af gerðinni
Doosan L126 400hö/2100sn tengd ZF gír.
Ljósavél er af gerðinni Kohler.
Í bátnum er ískrapavél frá Kælingu.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún, hann með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins, öryggisbúnaðurinn kemur frá Viking.
Báturinn er útbúinn til línuveiða, með línubeitningakerfi af gerðinni Mustad,
sem er á millidekki fyrir 17.000 króka.

Línuspil og færaspil er frá Beiti.
  

    Flettingar í dag: 2
    Gestir í dag: 2
    Flettingar í gær: 37
    Gestir í gær: 17
    Samtals flettingar: 203656
    Samtals gestir: 66083
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 03:28:00