Guðlaugur Albertsson

Vafraðu um


Tenglar

Um mig

Nafn:

Guðlaugur J. Albertsson

Farsími:

864 4788

Heimilisfang:

Þóshamar

Staðsetning:

Tálknafirði

Heimasími:

438 6470

Um:

Græjur sem ég nota: Myndarvélar: CANON 5D Canon EOS 20D Linsur: Canon 17-40 mm 1:4 Canon 28-70 mm 1:2,8, Canon EFS 18-55 mm 1:3,5-5,6, Sigma 70-300 1:4-5,6. Vatnsmerki er fengið úr HP ljósmyndaforriti

Færslur: 2009 Maí

16.05.2009 20:55

Eyfirðingar sækja Pateksfirðinga heim

                                                     Eyfirðingar sækja Patreksfrðinga heim

Karlakór Eyjafjarðar hélt tónleika á Patreksfirði síðastliðinn föstudag, 

15.maí 2009.

Fjölbreytt lagaval var í boði, t.d. eftir Jón Múla Árnason, 

Ladda og Gísla Rúnar.

Einnig voru erlend lög sungin, lög frá Írlandi og Englandi.

Stjórnandi kórsins var Petra Björk Pálsdóttir, undirleikari 

var Helga B. Magnúsdóttir.

Einsöngvarar voru Birgir Björnsson, Haukur Harðarson, 

Snorri Snorrason og Þorsteinn Þ. Jósepsson.

Í lok tónleikanna söng Karlakórinn Vestri þrjú lög með 

Karlakór Eyjafjarðar.

Góð aðsókn var að tónleikunum.


 

 

15.05.2009 23:43

Grillveisla

                                                         Grillveisla



Oddi hf. bauð starfsfólki sínu í grillveislu á föstudaginn 15.maí. Vel var mætt í grillið í blíðskaprveðri, eins og myndirnar sýna.. 
Fleiri myndir í albúmi.

 

10.05.2009 23:35

-Nú er bjart um norður slóðir-



      Vortónleikar Breiðfirðingarkórsins                                                                  -Nú er bjart um norður slóðir-                               

Síðast liðinn Laugardag, 9.maí 2009 hélt Breiðfirðingakórinn tónleika í félagsheimili Patreksfirðinga. Flutt voru lög eftir ýmsa höfunda, m.a. Sigfús Halldórsson, Bubba Morthens, höfunda laga og ljóða vestan úr Dölum, ásamt margra annara höfunda. Þá voru  flutt nokkur falleg lög úr söngleikjum og íslenskar söngperlur.   Breiðfirðingakórinn er 50 manna kór, og skemmtilegt frá því að segja að það eru 14 hjón í honum. Mjög góð mæting var á tónleikana. Kórstjórnandi var Hrönn Helgadóttir, einsöngvari var Davíð Ólafsson og undirleikari var Helgi Már Hannesson 


    Flettingar í dag: 2
    Gestir í dag: 2
    Flettingar í gær: 37
    Gestir í gær: 17
    Samtals flettingar: 203656
    Samtals gestir: 66083
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 03:28:00