Guðlaugur Albertsson

Vafraðu um


Tenglar

Um mig

Nafn:

Guðlaugur J. Albertsson

Farsími:

864 4788

Heimilisfang:

Þóshamar

Staðsetning:

Tálknafirði

Heimasími:

438 6470

Um:

Græjur sem ég nota: Myndarvélar: CANON 5D Canon EOS 20D Linsur: Canon 17-40 mm 1:4 Canon 28-70 mm 1:2,8, Canon EFS 18-55 mm 1:3,5-5,6, Sigma 70-300 1:4-5,6. Vatnsmerki er fengið úr HP ljósmyndaforriti

Færslur: 2009 Júlí

16.07.2009 15:45

Dynjandisheiði 50 ára

Dynjandisheiði 50 ára

Í tilefni þess að 50 ár eru í ár síðan vegur var lagður yfir Dynjandisheiði og akvegasamband komst á milli byggða á Vestfjörðum og milli Ísafjarðar og Reykjavíkur, verður efnt til hátíðahalda uppá Dynjandisheiði í dag. Allir eru velkomnir og verður gestum boðið upp á kjötsúpu, auk drykkja.
Gömul jarðýta, sem notuð var við vegagerðina fyrir 50 árum verður til sýnis. Hún hefur verið gerð upp og er vel gangfær.
Á hátíðinni verða nokkur ávörp flutt: Ásvaldur Guðmundsson, ýtustjóri sem vann við vegagerðina, Gísli Eiríksson, Vegagerð ríkisins, Sólrún Ólafsdóttir, Patreksfirði fyrir hönd íbúa, og Kristján Möller, samgönguráðherra.
Einnig mun Karlakór syngja, Elfar Logi Hannesson, leikari flytur ljóð eftir Guðmund Inga Kristjánsson frá Kirkjubóli í Önundarfirði, sem Guðmundur orti í tilefni af vegagerðinni fyrir 50 árum. Halldór Smárason og Halldór Sveinsson frá Ísafirði leika og Rannveig Björg Þórarinsdóttir, óperusöngkona syngur.
Afhjúpuð verður áskorun til stjórnvalda.
Að lokinni hátíðardagskrá leikur hljómsveitin Yxna frá Ísafirði.


 Þeir vegfarendur sem hafa farið yfir Dynjandisheiði í sumar hafa ekið um á "rauðum dregli".

    Flettingar í dag: 2
    Gestir í dag: 2
    Flettingar í gær: 37
    Gestir í gær: 17
    Samtals flettingar: 203656
    Samtals gestir: 66083
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 03:28:00